Laugardagur, 21. október 2006
29 og eldist eins og gott eðalvín
Jæja - þá er það orðið raunverulegra en áður.... maður er alltaf að nálgast æ meira "dirty" aldurinn alræmda, ég verð nú bara að segja eins og margir að ég get ekki annað en beðið spennt eftir þeim tímamótum enda ekkert eins skemmtilegt og að hafa ærna ástæðu til að halda gott partý ( þá vitið þið það - engar afsakanir - partý á Egilsstöðum eftir ár.....skora á ykkur að mæta)
Vaknaði upp við kæran snuddusöng yngsta fjölskyldumeðlimsins - var ekki frá því að hann væri að reyna að semja afmælissöng....sneri mér á hina hliðina og þar lá prinsessan ( það er svoooo gott að kúra uppí ) hún var fljót að átta sig - smellti góðum kossi á mömmu gömlu og sagði "hugsaðu þér, þegar ég verð 29 ára þá ert þú jafngömul og amma Bubba er núna ". Þetta var rétt hjá henni - það var nú ekki sem verst, enda ekki amalegt að eiga nær þrítuga stúlkukind og vera enn á præm aldri - varð hugsað strax til mömmu og pabba og, já allra vina og ættingja svo langt í burtu - fékk hemþrá en hún lagaðist fljót við knús frá bóndanum " til hamingju elskan - þú verður bara flottari með aldrinum já þá hvarf heimþráin fljótt enda erfitt að sakna þegar nær allir næstir manni erum samakomnir hjá manni.........sá í miðið kom skoppandi inn, enda önnumkafinn ungur maður - "til hamingju elsku mamma mín, ég er búin að kubba geimskip" ´"vá er það handa mér, takk fyrir" heyrði ég mig segja, "Nei, ég er bara að segja þér að í kubbaði geimskip
" Ok - það er ekki hægt að biðja um allt.
Fékk gjafir og morgunmat í rúmið .....mmmmm... þetta var lífið - hugsaði með mér að kannski ætti maður bara að fara að gera þetta að daglegum viðburi - en hugsaði með sér að hvorki heimilisfaðirin né börnin myndu endast lengi í þeim pakkanum - enda var það bara enn sérstakara að fá svona þjónustu einu sinni á ári - eða jafnvel bara þegar afmælisdaginn ber upp á helgidegi. Fórum öll famelían í sund - skemmtilegast að fara í kappsund við heimasætuna (og já, hún er orðin MIKLU betri en húsfreyjan) þannig að það var ánægjulegt rúst af hennar hálfu.
Þegar heim kom beið húsfreyjunnar enn ein óvænt ánægjan..... fyrsta kaffiboðið hérna á Egilsstöðum. Og þvílíkar kræsingar hafa ekki sést lengi vel - það kom þeim hjónakornum sem buðu skemmtilega á óvart að þetta væri í raun afmæliskaffi, og það ekki af verri endanum.......
...jæja ég hugsa að ég fari nú að horfa á bóndann töfra fram afmælismat kvöldsins og þakka hér með öllum sem hafa verið svo sætir að senda mér kveðjur og slá á þráðinn í dag
knús og kossar og sakn sakn og ég ætla að enda með að segja, eins og krakkalakkarnir mínir hafa oft kveðið:
"Þetta er búinn að vera BESTI afmælisdagurinn minn "
tótlan síunga (sem er alveg að tapa sér í brosköllum í þetta skiptið)
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:26 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.