Miðvikudagur, 10. desember 2008
Keisari í 3 ár
Keisarinn er orðinn 3ja ára! Nákvæmnismaðurinn mikli sem kom í heiminn þann 9. desember á Frederiksbergspítala árið 2005 - (og ætlaði að fæðast í herberginu sem sjálf Margrét Danadrottning hafði fæðst áratugum áður- en ákvað síðan að koma frekar með stæl keisaranna og birtist ákkúrat kl: 1234 daginn sem ljósmóðir og ýmsir útreikningar höfðu úthlutað honum - utroligt! sögðu ljósmæður og starfsfólk spítalans).
Húsmóðirin var ekki viss með nákvæmnisáráttuna en vissi að hér fór mikill karakter líkt og öll hennar börn. Forseti, bankastjóri, læknir eða lögga - já drengnum yrði allt til lista lagt - innst inni vissu þó foreldrarnir að það mikilvægast hlyti að vera hamingjufundurinn og gleðin sem skein af barninu - með hamingjuna í farteskinu er nefnilega allt mögulegt :)
Til hamingju Þorgrímur Nói - 3 ára!!!!!
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 13:23 | Facebook
Athugasemdir
Bara að prófa hvort athugasemdarkerfið virkar....
Tóta Lauf, 11.12.2008 kl. 13:46
Því má bæta við að Keisarinn vill halda afmælismánuð - og taka þ.e.a.s. desember frá í herlegheitin. Jesú sjálfur og áramótin þurfa að bíta í það súra epli að færa sig.
G.Örn
G.örn (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 11:08
Hamingju óskir með drenginn og svo hinn á morgun!!
Auðvitað vill þessi elska eiga sinn afmælismánuð..það ætti bara að banna fólki að gera dodo í mars!!
Bestu kveðjur.Haddý
Haddý (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 22:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.